Hoppa yfir valmynd
16. maí 2024 Dómsmálaráðuneytið

Margrét Kristín Pálsdóttir skipuð aðstoðarlögreglustjóri

Margrét Kristín Pálsdóttir - mynd

Dómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Kristínu Pálsdóttur í stöðu aðstoðarlögreglustjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá og með 17. maí 2024, til fimm ára.

Margrét Kristín lauk ML námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013 og hafði áður lokið B.A. gráðu frá sama skóla árið 2011. Hún hefur starfað sem yfirlögfræðingur lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá desember 2020 og sviðsstjóri Stjórnsýslu- og þjónustusviðs samhliða stöðu yfirlögfræðings frá janúar 2021. Hún var settur aðstoðarríkislögreglustjóri frá janúar til mars árið 2020 og settur aðstoðarlögreglustjóri hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum frá ágúst til desember 2020. Áður var hún lögfræðingur og staðgengill sviðsstjóra/deildarstjóra Landamæradeildar ríkislögreglustjóra á árunum 2019 til 2020 og lögfræðingur á skrifstofu almanna- og réttaröryggis í dómsmálaráðuneytinu á árunum 2012 til 2020.

Margrét Kristín hefur starfað hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem settur aðstoðarlögreglustjóri síðan í byrjun árs 2024.


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum